Vaxandi suðaustanátt og rigning síðdegis
Veðurstofa Íslands hefur varað við stormi (meira en 20 m/s) og vindhviðum allt að 35 m/s við fjöll við suður- og suðvesturströndina og á miðhálendinu eftir hádegi. Á Ströndum og Norðurlandi vestra er vaxandi austanátt, 8-15 síðdegis. Fer að rigna upp úr hádegi. Hægari og úrkomuminna um miðnætti.
Á morgun er suðaustan 5-13 og rigning með köflum. Hiti 8 til 15 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Austan og norðaustan 8-13 m/s og rigning SA-lands, en annars skýjað með köflum og skúrir á víð og dreif. Hiti 10 til 16 stig, hlýjast N- og V-lands.
Á laugardag:
Norðaustlæg átt, 5-13. Skýjað en úrkomulítið á norðanverðu landinu, rigning SA-lands en síðdegisskúrir SV-lands. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast V- og N-lands.
Á sunnudag:
Útlit fyrir sunnan 5-10, rigningu S- og V-lands og hiti 8 til 12 gráður en annars skýjað með köflum og hiti 10 til 16 stig.
Á mánudag:
Sunnan 5-10, dálítil væta S- og V-lands en annars skýjað með köflum. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast NA-til.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir hægviðri, bjart með köflum en skýjaðra með sjónum. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast inn til landsins.
Á miðvikudag:
NA-læg átt, rigning SA-til. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast SV-lands.