Vaxandi suðaustanátt og slydda á morgun
Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja á vegum. Á Ströndum og Norðurlandi vestra er sunnan 3-10, bjart veður og minnkandi frost. Vaxandi suðaustanátt á morgun, 13-20 og slydda seinnipartinn á morgun, en mun hægari seint annað kvöld, einkum vestantil. Hiti 0 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á mánudag:
Hvöss suðaustanátt og rigning um landið A-ast, hiti 3 til 8 stig. Annars staðar mun hægari suðvestlæg eða breytileg átt, slydda eða snjókoma með köflum og hiti um frostmark.
Á þriðjudag:
Suðaustan 8-15 m/s og él, en úrkomulítið fyrir norðan. Hvassari austanátt, hlýnar og úrkoma austantil um kvöldið. Hiti um og undir frostmarki.
Á miðvikudag:
Hvöss vestlæg átt og snjókoma eða slydda, en lægir og rofar til nokkuð víða eftir hádegi. Hiti breytist lítið.
Á fimmtudag (gamlársdagur) og föstudag (nýársdagur):
Suðlæg átt 5-10 m/s og él, en bjartviðri á N- og A-landi. Frost 1 til 12 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan.