Vaxtarsamningur Norðurlands vestra endurnýjaður
Jón Óskar Pétursson framkvæmdastjóri SSNV lagði fram á stjórnarfundi þann 15. mars s.l. upplýsingar um væntanlegt innihald nýs Vaxtarsamnings Norðurlands vestra sem áformað er að gildi tímabilið 2011- 2014. Gert er ráð fyrir að framlag Iðnaðarráðuneytisins til nýs samnings verði 30 milljónir á ári.
Bjarni Jónsson formaður SSNV fór yfir niðurstöðu samtals við menntamálaráðherra þar sem komið var á framfæri athugasemdum stjórnar SSNV vegna endurnýjunar menningarsamnings Norðurlands vestra. Niðurstaðan var sú að varla er að vænta leiðréttingar að svo stöddu. Stjórn SSNV lýsti yfir vonbrigðum með þá miklu skerðingu sem boðuð er og áskilur rétt til þess sækja á leiðréttingu síðar. Stjórnin harmar að lengra sé gengið í niðurskurði til menningarsamnings Norðurlands vestra en annarra landsvæða. Þrátt fyrir það samþykkir stjórnin framlögð samningsdrög og felur formanni undirritun.