Veðrið einna verst í Skagafirði og Húnavatnssýslum
Nú er snjóbylur á norðurlandi með norðan 13-20 m/s og snjókomu og verður áfram fram eftir degi. Dregur úr vindi og ofankomu í kvöld og nótt. Vegir eru víða ófærir og skólum hefur sumstaðar verið aflýst vegna veðursins.
Veðrið er einna verst í Skagafirði og Húnavatnssýslum, einnig í Eyjafirði. Kennsla fellur niður í Varmahlíð, á Hofsósi, í Hólaskóla á Hólum í Hjaltadal og í Sólgarðsskóla í Fljótum. Eins fellur skólahald niður í Húnavallaskóla og leikskólanum Vallabóli. Hvorki skólabílar né skólarúta á milli Laugabakka og Hvammstanga aka í Húnaþingi vestra en skólinn á Hvammstanga er hins vegar opinn.
Eins og sjá má á korti af vefsíðu vegagerðarinnar er ófært yfir Þverárfellið en annarsstaðar er þæfingur, snjór eða krapi og hálka.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag:
Norðan 5-10 í fyrramálið og dálítil él, en hægari eftir hádegi á morgun og úrkomulaust að mestu. Frost 2 til 8 stig, en allt að 14 stig í innsveitum á morgun.
Á fimmtudag:
Suðvestlæg átt, yfirleitt á bilinu 3-10 m/s. Snjókoma og síðar él um landið vestanvert, en þurrt að kalla austantil. Frost víða 3 til 10 stig.
Á föstudag:
Austlæg átt, 5-15 m/s, hvassast við S-ströndina. Snjókoma, fyrst S-lands, en síðar slydda þar. Frost 0 til 8 stig, en frostlaust við S-ströndina.
Á laugardag:
Gengur í norðanátt með snjókomu, en styttir upp að mestu S- og SV-lands. Kólnandi veður.
Á sunnudag og mánudag:
Útlit fyrir norðlæga átt með éljum, en bjartviðri á S-verðu landinu. Kalt í veðri.