Veður fer kólnandi

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er hæg breytileg átt og dálítil slydda, en norðaustan 3-8 m/s og smáél síðdegis. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands verður norðaustan 5-13 m/s á morgun, hvassast á annesjum, skýjað, og stöku él á Ströndum. Hiti 0 til 5 stig í dag, en heldur svalara á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á föstudag:
A- og NA-átt, víða 5-10 m/s. Lítilsháttar skúrir eða él S- og SV-lands, annars skýjað og úrkomulítið. Frost 0 til 8 stig, en hiti 1 til 6 stig að deginum á S- og V-landi.

Á laugardag:
Austan og norðaustan 5-13 m/s, en hægari vindur NA-til. Léttir til V-lands, annars skýjað og dálítil él á NA-landi og með S-ströndinni. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan, en hiti 0 til 5 stig að deginum SV-til.

Á sunnudag:
Austanátt og léttskýjað á V-verðu landinu, en dálítil él SA- og A-lands. Fremur kalt í veðri.

Á mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir austlæga átt og heldur hlýnandi veður. Úrkoma með köflum A-til, en yfirleitt bjart veður V-til.

Fleiri fréttir