Veður með versta móti og gleðiganga Árskóla slegin af

Það er leiðindaveður á Norðurlandi vestra en þó sennilega sýnu verst í Skagafirði þar sem norðanáttin nær sér vel á strik og það hellirignir. Reikna má með svipuðu veðri fram eftir degi og dregur varla úr úrkomu og vindi fyrr en líða fer á miðvikudaginn. Allir vegir eru færir en snjór og krap var á heiðum í morgun sem og í Langadalnum og Hrútafirði.
Snjór og krap er enn á Þverárfjallsvegi og hálkublettir á Vatnsskarði, krap er á þjóðvegi 1 í Hrútafirði, hálka og bálhvasst á Holtavörðuheiði. Þæfingur er úr Fljótum og til Siglufjarðar. Það er því augljóst að þeir sem ætla sér yfir heiðar og fjöll þurfa að kanna aðstæður áður en lagt er í hann og þá sérstaklega þeir sem komnir eru á sumardekkin.
Gular og appelsínugular viðvaranir eru enn í gildi um allt land og dregur smám saman úr þeim með kvöldinu en hér á Norðurlandi vestra dettur sú gula ekki út fyrr en um kl. 15 á morgun – miðvikudag.
Til stóð að nemendur og starfsfólk Árskóla á Sauðárkróki færi í sína árlegu gleðigöngu nú í morgun en gangan var slegin af í gær þegar sýnt þótti að veðrið yrði með leiðinlegasta móti.