Veðurblíða í Vatnsdalnum - myndir
Það var blíðurveður og búsældarlegt um að litast í landnámi Ingimundar gamla, hinum grösuga Vatnsdal, þegar Feykir átti leið þar um á sunnudaginn. Búfénaður, fiðurfénaður, stangveiðimenn og sumarbústaðargestir, allt minnti þetta á að sumarið er komið og vonandi til að vera. Meðfylgjandi myndir eru sýnishorn af því sem fyrir augu bar í austanverðum dalnum.