Veðurklúbburinn á Dalbæ býst við léttu páskahreti
Í gær, þriðjudaginn 6. mars, komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar í því skyni að huga að veðurhorfum í marsmánuði. Fundurinn hófst kl. 13:55 og voru fundarmenn sjö talsins. Að venju var farið yfir sannleiksgildi spár fyrir liðinn mánuð og útkoman að vonum góð.
Í skeyti Veðurklúbbsins segir að nýtt tungl kvikni 17. þessa mánaðar í suðri kl. 13:12 og mun það vera laugardagstungl, sem þykir gott tungl. Gert er ráð fyrir að veðurfar í mars verði áþekkt og veður hefur verið undanfarið, þ.e. umhleypingsamt með breytilegum vindáttum og fremur kalt. Reikna má með nokkurri snjókomu, en hláku inn á milli. Búist er við léttu páskahreti, sem stendur þó frekar stutt.
Fundi lauk síðan kl. 14:20
Veðurvísa mánaðarins
Febrúar á fannir
þá læðist geislinn lágt.
Í mars þá blæs oft biturt,
en birtir smátt og smátt.
Með góðri góðri kveðju og ósk um gleðilega páska.
Veðurklúbburinn á Dalbæ.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.