Veðurklúbburinn spáir fyrir september
Veðurklúbburinn í Dalbæ á Dalvík hefur gefið út spá fyrir september mánuð og lofar hún góðu. Á fjölmennum fundi klúbbsins í gær var ennfremur farið yfir forspárgildi ágústspár klúbbsins og voru menn sáttir við þá útkomu, eins og segir í fréttatilkynningu frá klúbbnum.
„Nýtt tungl kviknar 13. sept. kl. 06:41 í austri og er það sunnudagstungl. Innkoma tunglsins á þessum tíma og stað segir klúbbfélögum að veður muni verða gott í september. Svipað veður og var í ágúst. Þó heldur minni úrkoma og jafnvel hærra hitastig af og til þó svo að það gráni í fjallatoppa,“ segir í fréttatilkynningunni.
Góð stemming var á fundinum og er klúbbfélagar bjartsýnir á milt og gott veður fram eftir hausti. Draumar og aðrar sýnir styðja þessar væntingar, en nákvæm veðurspá er ekki gefinn út nema fyrir einn mánuð í senn, segir loks í fréttatilkynningunni, en með henni fylgir eftirfarandi veðurvísa:
Í ágúst slá menn engið,
og börnin tína ber.
Í september fer söngfugl
og sumardýrðin þver.