Veðurklúbburinn spáir rysjóttu tíðarfari og hvítum jólum
Þriðjudaginn 1. des. 2015 komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar. Fundurinn hófst kl. 14:00 með einnar mínútu þögn í virðingarskyni við nýlátinn klúbbfélaga, Gunnar Rögnvaldsson, sem var virkur í starfi klúbbsins og lagði m.a. til veðurfarsvísurnar, sem fylgt hafa veðurspánni á þessu ári.
Fundarmenn voru 13 talsins og fundinum lauk kl. 14:25. Fundarmenn voru sáttir við hvernig síðasta spá gekk í meginatriðum eftir, þó svo að snjóað hafi heldur fyrr en reiknað var með og lítilega meira en klúbbfélagar ætluðust til .
Nýtt tungl kviknar 11. desember. kl. 10:29 í suðaustri og er það föstudagstungl. Veðurfar fimmtudag fyrir tunglkomu og mánudaginn þar á eftir er talið ráða miklu um hvernig veður verður út mánuðinn.
Gert er ráð fyrir að veðurfar í desember verði rysjótt. Hitastig verði svipað og var í nóvember og ekki megi búast við neinum frosthörkum, þó svo að hitastig verði að mestu undir frostmarki, sem er ekki óelilegt á þessum árstíma. Gert er ráð fyrir að nú verði hvít jól.
Klúbbfélagar senda öllum góðar óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári. Einnig þakka þeir fyrir athygli sem veðurspá þeirra hefur vakið og góðar kveðjur sem klúbbnum hafa borist.