Veðurofsi í dag og á morgun
Svo virðist sem veðurofsinn sem Veðurstofa Íslands spáði fyrir daginn í dag og morgundaginn sé að einhverju leyti gengin eftir. Nánast á mínútunni þrjú í dag brast á með leiðindaveðri á Sauðárkróki. Spáin er eftirfarandi:
Spáin er eftirfarandi:
Norðan og norðvestan 18-25 m/s, en 20-28 síðdegis, hvassast á Suðausturlandi og á hálendinu og víða mjög snarpar vindhviður, einkum suðaustanlands og á sunnanverðum Austfjörðum yfir 40 m/s. Talsverð eða mikil rigning austanlands, talsverð rigning eða slydda norðanlands, en slydda eða snjókoma til fjalla. Úrkomulítið sunnan- og vestanlands.
Spáð er sjókomu ofan 200-300 m, en. í kvöld kólnar heldur og við það færist snælínan um 100 til 200 metra neðar og því má búast við slyddu eða snjókomu á lálendi N-til í kvöld og nótt.
Dregur hægt úr vindi og úrkomu þegar líður á morgundaginn, fyrst vestantil.