Veðurstofan varar við stormi
Veðurstofa Íslands varar við stormi á V- og N-verðu landinu á morgun, þar sem meðalvindhraði verður meiri en 20 m/s. Í dag verður hæg austanátt og þurrt að kalla, en 8-13 og dálítil rigning, slydda eða snjókoma undir kvöld. Hvessir í nótt, norðaustan 15-25 á morgun og slydda í fyrstu, síðan snjókoma. Hiti kringum frostmark, en heldur kólnandi á morgun.
Í athugasemdum veðurfræðings segir að vonskuveður morgundagsins verði misskipt á milli landshluta en gera megi ráð fyrir mjög snörpum vindhviðum SA-lands í kvöld og fram á nótt. Einnig má búast má við hviðum yfir 40 m/s í vindstrengjum við fjöll á morgun, einkum vestantil á landinu seinnipartinn.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Norðan 15-23 m/s og snjókoma, en þurrt S-lands. Fer að draga úr vindi seinnipartinn, fyrst V-til. Frost 2 til 8 stig.
Á sunnudag:
Minnkandi N-átt og kalt í veðri. Él N- og A-lands, annars bjartviðri. Vaxandi suðaustanátt á S- og V-landi seinnipartinn og dregur úr frosti. Rigning eða slydda við ströndina um kvöldið SV-til en annars snjókoma.
Á mánudag:
Austanátt með rigningu eða slyddu á S-verðu landinu, en snjókoma með köflum N-til. Hiti kringum frostmark, en vægt frost inn til landsins.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir breytilega átt með úrkomu á víð og dreif. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag:
Líkur á norðan- og norðvestanátt með éljum N-lands, en þurrt að mestu sunnan heiða. Frost um mest allt land.