Vefnaður greindur og skrásettur
Vegna áframhaldandi uppbyggingar á sviði textíls hafa Þekkingarsetrið á Blönduósi og Textílsetur Íslands ráðið Ragnheiði Björk Þórsdóttur, veflistamann og vefnaðarkennara, til að sinna skráningu á vefnað.
Ragnheiður mun greina og skrásetja munstur sem tilheyra kennslugögnum Kvennaskólans á Blönduósi og undirbúa þau til útgáfu, ásamt öðrum vefnaðargögnum sem varðveitt eru af Vinum Kvennaskólans. Mun hún einnig hafa yfirumsjón með veflofti Kvennaskólans og leiðbeina listamönnum sem dvelja í Textílsetrinu sem og nemendum Listaháskólans og Myndlistaskólans í Reykjavík.
Á vef Þekkingarsetursins segir að verkefni vegna vefnaðarmunstra séu tímabundin og muni leggja grunn fyrir rannsóknir á vefnaði og vefnaðarkennslu í framtíðinni. Einnig séu bundnar vonir til þess að nemendur og textíllistamenn sem dvelji í Kvennaskólanum muni nýta gagnagrunninn fyrir verkefni sín sem og innblástur í listaverkum sínum.Þá er sagt frá því á vef Þekkingarsetursins að hafinn sé undirbúningur að samstarfi Textílseturs við Myndlistaskólans en undanfarna þrjá vetur hafa nemendur Listaháskólans komið í námsdvöl á Blönduósi.