Vegagerðin geri ekki athugasemd við að aðalskipulagsáætlanir

Á fundi bæjarráðs Blönduósbæjar fyrir helgi var lagt fram til kynningar bréf frá Skipulagsstofnun frá 23. nóvember 2010 en aðalskipulagsáætlun Blönduósbæjar er til afgreiðslu þar. Í bréfinu mælir Skipulagsstofnun eindregið með því að Vegagerðin geri ekki athugasemd við að aðalskipulagsáætlanir Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar verði staðfestar með óbreyttri veglínu enda verði sveitarfélögin reiðubúin til að taka þátt í samráðsferli með Vegagerðinni þar sem leitað verði leiða til að finna framtíðarlausn á legu Hringvegar í Austur-Húnavatnssýslu áður en kemur að næstu endurskoðun aðalskipulagsins.

Fleiri fréttir