Vegir auðir í Húnavatnssýslum

Vegir í Húnavatnssýslum eru að heita má auðir en hálka er á Þverárfjalli og éljagangur á Vatnsskarði. Það er snjóþekja og ofankoma á Öxnadalsheiði. Á Ströndum og Norðurlandi vestra er austan 8-13 m/s og 5-10 og snjókoma eða slydda með morgninum. Suðvestan 3-8 og lítilsháttar él í kvöld og á morgun. Hiti um eða yfir frostmarki.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:

Suðvestan 8-15 m/s sunnan- og vestantil og snjókoma með köflum en sunnan 5-10 m/s og bjartviðri norðanlands. Frostlaust við ströndina sunnan og austantil annars vægt frost.

Á fimmtudag og föstudag:

Suðvestan 10-18 m/s og él en 5-10 m/s og skýjað með köflum á N- og A-landi. Hiti breytist lítið.

Á laugardag:

Suðlæg átt og él S- og V-lands, en annars bjart að mestu en suðaustlæg átt þykknar upp með snjókomu austanlands um kvöldið. Frost 0 til 5 stig.

Á sunnudag:

Útlit fyrir vaxandi austlæga átt með ofankomu, fyrst sunnan og austanlands, en vestlæg átt um kvöldið og snjókoma um allt land. Áfram kalt í veðri.

Á mánudag:

Norðlæg átt og snjókoma norðantil en vestanátt og él sunnlands og víða kalt í veðri.

Fleiri fréttir