Vegurinn í Austurdal lagfærður

Vegurinn í Austurdal lagfærður. MYND: SKAGAFJÖRÐUR.IS
Vegurinn í Austurdal lagfærður. MYND: SKAGAFJÖRÐUR.IS

Á vef Skagafjarðar var sagt frá því fyrir helgi að nú standa yfir lagfæringar á veginum í Austurdal, frá Stekkjarflötum að Merkigilinu. Miklar skemmdir urðu á veginum í vatnavöxtum síðastliðið sumar og mátti heita ófær fólksbílum.

„Skipta þurfti um tvö vegræsi, auk þess sem runnið hafði úr veginum og hann grafist af vatni. Hreinsa þarf frá nokkrum ræsum á vegkaflanum, einkum í Mosgili og Bæjargili. Víðimelsbræður vinna verkið sem klárast í vikulok en Skagafjörður hafði veitt 4 milljónum til viðgerða á veginum.“ segir í fréttinni.

Fleiri fréttir