Vegvísir á vefnum fyrir fyrirtæki og einstaklinga
Atvinnuvegurinn.is, nýr sameiginlegur upplýsingavefur, hefur verið opnaður á vegum Ferðamálastofu, Orkustofnunar, Iðnaðarráðuneytis, Byggðastofnunar og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Atvinnuvegurinn.is er hugsaður sem leiðarvísir um þjónustuframboð ofangreindra aðila og gerir einstaklingum og stjórnendum fyrirtækja kleift að leita eftir upplýsingum á einfaldan hátt.
Mikilli þekkingu og reynslu er miðlað til þeirra sem eftir leita þar sem einstaklingum og fyrirtækjum bjóðast fjölbreyttir styrkir og fyrirgreiðsla, hvers kyns upplýsingar sem að gagni mega koma í rekstri sem og við framkvæmd rannsókna.