Veiðiferð varð að björgunarleiðangri

Á dögunum fóru nemendur í náttúrufræðivali í Blönduskóla, ásamt kennara, í vettvangsferð í Vatnahverfi í þeim tilgangi að veiða hornsíli. Þau átti síðan að setja í fiskabúr í skólanum. Ferðin fór þó á annan veg því nemendur sáu tvo fugla berjast um á vatnsborðinu.

Höfðu himbrimi og lómur flækt sig í silunganeti er lagt hafði verið í vatnið. Voru þeir búnir að flækja sig svo illa í netinu að ekki tókst að losa þá með þeim útbúnaði sem tiltækur var á staðnum. Þurfti því að leita til lögreglunnar sem brást vel við og yfirtók björgunaraðgerðina.

Því miður þurfti að aflífa himbrimann þar sem hann var illa særður en sem betur fer tókst að hjálpa lómnum.

Þó ekkert yrði úr sílaveiðunum verður þessi vettvangsferð eflaust eftirminnileg nemendum. Frá þessu er sagt á vefsíðu Blönduósbæjar.

Margar myndir úr ferðinni eru á myndasíðu skólans.

Fleiri fréttir