Veiðigjald útgerða hækkað úr 650 milljónum í 9 milljarða á sjö árum
Veiðigjald, sem lagt er á útgerðir landsins, hefur fimmfaldast á undanförnum árum, úr 649 milljónum króna fiskveiðiárið 2005-2006 í rúmlega 3 milljarða króna fiskveiðiárið 2010-2011. Áætlað er að tekjur ríkissjóðs af veiðigjaldi á yfirstandandi fiskveiðiári hækki um 50% frá því síðasta og verði um 4,5 milljarðar króna. Þetta kemur fram í svari sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Einars Kristins Guðfinnsonar á Alþingi.
Veiðigjald á þessu fiskveiðiári hefur verið ákveðið 13,3% af framlegð útgerða. Miðað við óbreyttar forsendur um afla, framlegð og þorskígildisstuðla sem notaðar eru við útreikning á áætluðu veiðigjaldi á þessu fiskveiðiári og boðaða hækkun veiðigjaldsins upp í 27% af framlegð fyrirtækjanna má áætla að veiðigjaldið fiskveiðiárið 2012-2013 verði ríflega 9 milljarðar króna.
„Þessi stórfellda gjaldtaka af útgerðunum, sem allt bendir til að muni hækka fjórtánfalt á aðeins sjö árum, kemur fyrst og fremst til með að veikja landsbyggðina, þar sem langflestar útgerðirnar eru,” segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf. í Hnífsdal.
„Um 90% allra aflaheimilda eru á landsbyggðinni, þar sem sjávarútvegurinn er víða kjölfestan í atvinnulífinu. Ég veit ekki alveg hvernig þetta rímar við áform stjórnvalda um að efla byggð í landinu en þingmenn stjórnarflokkanna geta vafalítið útskýrt þetta fyrir kjósendum,” segir Einar.
/Karl Eskill