Veiðileyfi í Laxá
Veiðileyfum er úthlutað eftir arðskrá og síðan selja eigendur þá daga sem þeir fá úthlutað. Veiðin í Laxá hefur verið góð, en veiðin hófst 14 júlí og lýkur 26 ágúst.
42 veiðileyfi hafa skilað sér og hafa veiðst 102 laxar, sem gerir 2,42 laxar á stöng. Veiðimenn hafa ekki verið nógu duglegir að skila inn veiðileyfum sínum að veiði lokinni og vantar því talsvert af veiddum leyfum. Veiðifélag Laxár hvetur menn til að skila þeim sem fyrst svo veiðitölur verði sem réttastar.
/Fréttatilkynning