Veiðin í fyrra tvöfölduð og þrefölduð

Nú þegar veiðisumrinu er að ljúka hefur veiðin í helstu laxveiðiám á Norðurlandi vestra verið tvöfölduð eða jafnvel þrefölduð miðað við heildarveiðina í fyrrasumar. Miðfjarðará heldur þriðja sætinu og Blanda sjötta sætinu á listanum yfir aflahæstu laxveiðiár landsins.

Hér fyrir neðan gefur að líta stöðuna í þeim ám á Norðurlandi vestra sem komast á listann yfir 75 aflahæstu laxveiðiár landsins, miðað við 18. September síðast liðinn. Talan innan svigans sýnir heildarveiðina í fyrra til samanburðar.

Þess má geta að enn er hægt að næla sér í veiðileyfi í Svartá því hún er opin til 30. september.

Miðfjarðará 3554 (1610)

Blanda 2610 (832)

Vatnsdalsá 1054 (327)

Laxá á Ásum 1029 (327)

Víðidalsá 836 (325)

Hrútafjarðará og Síká 625 (177)

Svartá í A-Hún. 351 (148)

Fljótaá 247 (84)

Fleiri fréttir