Veiðin í húnvetnsku ánum

Undanfarnar vikur hafa reglulega verið birtar aflatölur á vef Feykis þar sem greint er frá gengi veiðimanna í helstu laxveiðiám Norðurlands vestra. Margir fylgjast grannt með slíkum tölum og aðrir minnast með fortíðarþrá og eftirsjá fréttaritarans Gríms Gíslasonar, sem gjarnan sagði frá „veiðinni í húnvetnsku ánum.“

Þessa dagana ber kannski hæst í húnvetnskum laxveiðifréttum að Miðfjarðará þokar sér enn uppá við á listanum yfir aflahæstu ár landsins og var, samkvæmt tölum frá 4. september, í þriðja sæti með 3165 laxa og er þetta því þriðja besta veiðisumarið frá því 1974, en tölur á vefnum angling.is ná aftur til þess árs.

Vatnsdalsá í Austur-Húnavatnssýslu á sinn eigin vef og þar eru reglulega sagðar skemmtilegar veiðifréttir. Þar segir m.a. í frétt á síðunni í dag:

„En mín skoðun er almennt sú að lífið sé gott. Veðrið er eins og þar er og samt eru allir glaðir. Stórir fiskar í ánni, eins og þetta Vatnsdalströll sem Þorbjörn Helgi fékk í Vaðhvammi í AC/DC hollinu, 97 cm hængur sem tók í rökkrinu, á slaginu klukkan 21:00. Hvað er hægt að hafa það betra?“

Fleiri fréttir