Veiðisvæði Blöndu og Svartár til leigu
Heiðadeild Veiðifélags Blöndu og Svartár hefur óskað eftir tilboðum í silungsveiði á vatnasvæði veiðifélagsins sem er Blöndulón og þær þverár sem falla í lónið og Blöndu ofan Blöndustíflu. Meðal annars er netaveiði leyfð í Blöndulóni.
Hægt er að gera tilboð í vatnasvæðið allt eða skipta því í tvennt, austara svæði sem er hluti af Blöndulóni ásamt Galtará, Haugakvísl og Herjólfslæk eða vestara svæði sem er hluti af Blöndulóni ásamt Kúlukvísl, Seyðisá og Stóralæk.
Tilboðsfrestur er til 10. apríl 2011 og geta áhugasamir skila tilboðum til formanns félagsins, Jóhanns Guðmundssonar, Holti, sem veitir allar nánari upplýsingar.