Veitingastaður opnaður á Hveravöllum

Í Morgunblaðinu í dag er greint frá því að nýr veitingastaður verði opnaður á Hveravöllum í næstu viku. Um er að ræða veitingasal fyrir fimmtíu manns, í byggingu úr gámaeiningum sem tengd hefur verið þeim byggingum sem fyrir voru á staðnum.

Að Hveravallafélaginu ehf. sem heldur starfseminni úti standa ferðaþjónustufyrirtækið Grey Line og Húnavatnshreppur. Hafa þessir aðilar um skeið áformað byggingu allt að 1200 fermetra gistihúss og þjónustuskála á staðnum. Það sem skipulagsmál og leyfisveitingar hafa tafið slík áform er gámahúsið nýja hugsað sem einhvers konar millibilsástand.

Í Morgunblaðinu er rætt við Gunnar Guðjónsson sem verið hefur staðarhaldari á Hveravöllum frá 2008 og er þar með tíu manna starfslið yfir sumarið. Í fyrrasumar komum um 35 þúsund gestir á Hveravelli og ljóst þykir að þeir verði fleiri í ár. Daglega koma á milli 500 og þúsund manns á svæðið.

Auk hins nýja veitingarýmis er unnið að ýmsum úrbótum á svæðinu, svo sem fjölgun salerna. Þá er lögð mikil áhersla á að vernda hina viðkvæmu náttúru á svæðinu, en til að mynda voru tréstígar endurbyggðir fyrir fáum árum og þykja hafa reynst vel.

Kjalvegur er nú tiltölulega greiðfær en talsvert holóttur og víða grýttur. Hann var ekki opnaður fyrr en í júlíbyrjun sem er um einni til tveimur vikum seinna en í meðalári. Því er brýnt fyrir ferðamönnum að aka miðað við aðstæður.

 

Fleiri fréttir