Vel heppnuð Húnavökuhelgi

Bæjarhátíðin Húnavaka á Blönduósi lauk í gær, en hún var sett síðasta fimmtudag. Hátíðin var vel sótt, dagskráin heppnaðist rosalega vel og gestir almennt ánægðir. Það var kalt í veðri yfir helgina, en færa þurfti kvöldvökuna, sem er vanalega í Fagrahvammi undir berum himni, í Íþróttamiðstöðina vegna veðurs. Það heppnaðist vel, og margir segja að hápunktur Húnavöku hafi verið þegar Páll Óskar steig á svið og tók nokkur lög á kvöldvökunni. 

Börn á leikskólaaldri, eldriborgarar og allt þar á milli, hoppuðu, dilluðu sér og sungu með Palla hans bestu lög. Seinna um kvöldið hélt hann ball í Félagsheimilinu og ekki var stuðið minna þar. Á kvöldvökunni voru einnig veitt verðlaun fyrir sultukeppnina, fyrir hæfileikakeppni hverfa og viðurkenningar gefnar fyrir best skreyttu göturnar.

Á laugardeginum fór fram fjölskylduskemmtun sem tókst frábærlega og var vel sótt þrátt fyrir kalt veður. Felix Bergsson stýrði skemmtuninni og söng fyrir gesti. Þá fór fram hinn árlegi Míkróhúnn, söngvarakepnni fyrir börn og unglinga, en það kepptu margir efniegir söngvarar framtíðarinnar. Á svæðinu var einnig hoppukastalar, vatnsbolti, paintball, veltibíll, útigril, markaðsstemning og kassaílarallý.

Fleiri fréttir