Vel mætt á súpukvöld soroptimista við Húnaflóa
Soroptimistaklúbburinn við Húnaflóa stóð í gærkvöldi fyrir súpukvöldi á Blönduósi. Gestur kvöldsins var sr. Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju. Hefur hún vakið athygli fyrir skemmtilega og áhugaverða pistla sína, m.a. í Akureyri vikublaði.
Salurinn var þéttsetinn þetta kvöld og segja má að konur hafi verið í yfirgnæfandi meirihluta þar sem aðeins einn karlmaður var á staðnum. Boðið var upp á dýrindis súpu og heimabakað brauð að hætti kvennanna í klúbbnum.
Hildur Eir gerði mikilvægi heilbrigðrar sjálfsmyndar að umræðuefni í pistli sínum. Ræddi hún m.a. um það hversu oft hún hefði rekist á það í starfi sínu hvernig sjálfsmyndin bíður hnekki á lífsins leið. Góður rómur var gerður að erindi Hildar, sem sló á létta strengi inn á milli, enda fylgir allri alvöru nokkurt gaman.
Kirkjunnar þjónar; f.v. sr. Bryndís Valbjörnsdóttir sóknarprestur á Skagaströnd, sr. Hildur Eir Bolladóttir prestur í Akureyri, sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup á Hólum, Kristín Árnadóttir djákni á Borðeyri, sr. Sunna Dóra Möller, prestur í Akureyrarkirkju.
Eftir borðhaldið og erindið gafst gott tækifæri til að spjalla.
Glaðbeittar konur á súpukvöldi.
Það var þétt setinn salurinn á súpukvöldinu.
Hildur Eir flutti erindi um mikilvægi heilbrigðrar sjálfsmyndar.