Vélaþjónustan Messuholt og Víðimelsbræður með lægsta tilboð í endurbyggingu Svínvetningabrautar
Á þriðjudaginn voru opnuð tilboð í endurbyggingu Svínvetningabrautar, vegar nr. 731, frá Kjalvegi að hringvegi, en útboð var auglýst þann 25. apríl. Fjögur tilboð bárust og áttu Vélaþjónustan Messuholti ehf. og Víðimelsbræður ehf. lægsta tilboð, sem hljóðaði upp á tæpar 60 milljónir.
Útboðskaflinn sem um ræðir liggur um lönd jarðanna ytri-Löngumýrar, Syðri-Löngumýrar, Brúarhlíðar, Finnstungu og Ártúns. Liggur vegurinn yfir blöndubrú á 72 m langri hengibrú með 3,8 m breiðri akbraut. Hinn nýi vegur verður 7 metra breiður með 6,8 metra breiðri klæðningu.
Tilboðin sem bárust voru eftirfarandi:
Vélaþjónustan Messuholt ehf. og Víðimelsbræður ehf. 59.225.750
Áætlaður verktakakostnaður 62.341.000
Norðurtak ehf. Sauðárkróki 68.914.000
Borgarverk ehf. Borgarnesi 95.152.000
G.V. Gröfur ehf. Akureyri 95.729.000