Velferð dýra í Austur- og Vestur-Húnavatnssýslu stefnt í voða

Nautgripafélag Vestur-Húnavatnssýslu hefur sent landbúnaðarráðherra bréf þess efnis að kvartað er undan því að í sýslunni sé enginn starfandi dýralæknir. Þar segir jafnframt að velferð dýra í Austur- og Vestur-Húnavatnssýslu sé stefnt í voða.

Mbl.is greinir frá því að dýralæknum í sýslunum tveimur var sagt upp í vor vegna breytinga á skipulagi og tók uppsögnin gildi þann 1. nóvember. Samkvæmt nýja skipulaginu var gert var ráð fyrir að einn dýralæknir myndi starfa í báðum sýslunum en enginn sótti um þá stöðu þegar hún var auglýst.

„Það er ógerningur fyrir einn mann og móðgun við landbúnað á svæðinu. Nautgriparæktarbændur í Vestur Húnavatnssýslu krefjast strax úrbóta og að skipaður verði dýralæknir nú þegar, þetta ástand er ólíðandi. Við væntum viðbragða og viljum fá dýralækni eigi síðar en 10. nóvember,“ segir í bréfinu sem Valgerður Kristjánsdóttir, ritari Nautgripafélags Vestur-Húnavatnssýslu, sendi landbúnaðarráðherra og forstjóra Matvælastofnunar fyrir hönd félagsins.

Fleiri fréttir