Velferðaráðherra ræddi málin við starfsfólk HSB

Guðbjartur Hannesson velferðaráðherra fundaði með starfsfólki HSB þann 3. nóvember sl. og yfirskrift erindis hans var „Niðurskurður í velferðarmálum – hvað er verið að gera?“ Þá fór ráherra yfir þróun útgjalda til heilbrigðis og velferðarmála síðan 2006 og hvers væri að vænta á komandi ári. 

Fram kemur á heimasíðu HSB að þegar Guðbjartur hafði lokið máli sínu skiptist starfsfólk heilbrigðisstofnunarinnar á skoðunum við hann og fóru fram fjörugar og málefnalegar umræður.

Að fundinum loknum settist ráðherra niður með framkvæmdastjórn stofnunarinnar og málin voru krufin frekar.

Hér má sjá erindi ráðherra.

Fleiri fréttir