Vélhjólamaður festi hjól sitt á Arnarvatnsheiði
Björgunarsveitin Húnar og Björgunarfélagið Blanda voru kallaðar út til leitar á erlendum vélhjólamanni að Arnarvatnsheiði á laugardagskvöld, ásamt Björgunarsveitinni Ok. Samkvæmt Facebook-síðu Húna hafði vélhjólamaðurinn óskað aðstoðar og var einnig búinn að festa hjól sitt, en gat ekki gefið greinargóða lýsingu á staðsetningu sinni.
Vélhjólamaðurinn fór fram Arnarvatnsheiði úr Miðfirði og var á leið suður af heiðinni og fannst eftir þónokkra leit inni á Stórasandi undir klukkan þrjú um nóttina.
„Farið var með manninn austur á Kjöl og komið í húsaskjól í Áfanga eftir að búið var að hressa hann við. Björgunarsveitir fóru einnig með hjólið hans en hann reyndist ófær um að aka því sjálfur. Voru okkar menn komnir aftur til baka um klukkan sjö í morgun,“ segir á síðunni.
Þetta er annað skipti á viku sem sveitin er kölluð út til leitar á Arnarvatnsheiði en sl. fimmtudag var kallað út vegna veiðimanns sem var týndur við Norðlingafljót.