Verð á kjarnfóðri lækkar í dag
Fóðurblandan hefur sent frá sér tilkynningu um að verð á öllu tilbúnu fóðri lækkar í dag um 0-4%.
Að sögn Eyjólfs Sigurðssonar, framkvæmdarstjóra Fóðurblöndunnar, kemur þessi lækkun til vegna verðlækkunar á korni sem er keypt erlendis frá. „Verð á korni hækkaði síðastliðinn vetur en nú eru þær hækkanir smátt og smátt að ganga tilbaka.“
Nú eru fyrstu uppskerur á hveiti og byggi að berast til Fóðurblöndunnar en í október munu þeir fá til sín soja og maís. Mest allt korn kemur erlendis frá en í fyrra var 10% af bygginu ræktað á Íslandi. Að sögn Eyjólfs eru uppskerur að hefjast nú undir Eyjafjöllum „Við vonumst til að vera með hærra hlutfall af byggi í ár en það fer eftir hvernig uppskeran verður,“ sagði Eyjólfur.
Bústólpi hefur einnig sent frá sér tilkynningu um verðlækkun á kjarnfóðri um allt að 4%, en verð á sumum blöndum breytast ekki.