Verða einungis 11 þingmenn af 63 eftir kosningar
Einar K. Guðfinnsson veltir því fyrir sér á bloggi sínu hvort tillögur stjórnlagaráðs þýði í rauninni að einungis 11 þingmenn af 63 komi úr landsbyggðarkjördæmunum. Þessar vangaveltur Einars byggja á grein sem Þóroddur Bjarnason prófessor ritaði í Fréttablaðið í vikunni og að hans mati ekki fengið næga athygli. Telur Einar þarna alveg nýjan punkt í umræðunni að ræða.
„Tillögurnar búa til nýtt ójafnræði og óréttlæti af stærðargráðu sem ekki hefur fyrr sést á lýðveldistímanum, auka átök í þjóðfélaginu og skapa óréttlæti gagnvart landsbyggðinni sem verður algjörlega ólíðandi,“ segir Einar á blogginu og bætir við: „Ef jafna ætti vægi atkvæða þyrfti að færa sex þingmenn sem nú eru kjörnir úr landsbyggðakjördæmum á höfuðborgarsvæðið. Tillögur Stjórnlagaráðs fela það ekki í sér. Þær tillögur gera ráð fyrir að þingmenn verði 63, en að einvörðungu 11 þeirra kæmu úr landsbyggðakjördæmunum". Einar segir að miðað við þetta kæmu væntanlega 3 þingmenn inn á Alþingi úr Norðvesturkjördæmi í framtíðinni.
Sjá blogg Einars HÉR