Verða Sigmundur og Birkir á vetur setjandi?
Sindri Sigurgeirsson, varaþingmaður í Norðurlandskjördæmi Vestra, og formaður félags sauðfjárbænda, að því ógleymdu að vera bóndi í Bakkakoti í Borgarfirði brá sér af bæ um síðustu helgi og tók þátt í flokksþingi Framsóknarmanna.Á meðan á þinginu stóð þjófstarfaði ein ærin á bænum sauðburði og bar tveimur hrútlömbum sem að sögn Sindra fengu nafnið Sigmundur og Birkir.
Á fésbókarsíðu Sindra sköpuðust fjörugar umræður og höfðu einhverjir það á orði hvort þeir bræður Sigmundur og Birkir yrðu á vetur setjandi.
Var Sindri fljótur til svara; " Móðir þeirra Sigmundar og Birkis hefur þegar fengið nafnið Maddama og í ljósi þess frumkvæði sem hún þegar hefur sýnt og þess að faðirinn er líklega af forystu-kyni þá hljóta hrútarnir að verða settir á."
Bætti Sindri síðan við að Eygló myndi trúlega fæðast fljótlega.