Verðlaun fyrir frábæran árangur í sauðfjárrækt

Sauðfjárbændum í Austur-Húnavatnsssýslu voru veitt verðlaun fyrir frábæran árangur í sauðfjárrækt á liðnu ári á árshátíð búgreinafélaganna. Ljósm./Auðunn Karlsson.
Sauðfjárbændum í Austur-Húnavatnsssýslu voru veitt verðlaun fyrir frábæran árangur í sauðfjárrækt á liðnu ári á árshátíð búgreinafélaganna. Ljósm./Auðunn Karlsson.

Magnús Jósefsson og Líney Árnadóttir í Steinnesi fengu verðlaun fyrir mestar afurðir á árinu 2015, með meðalafurðir 34 kg eftir ær tveggja vetra og eldri, á árshátíð búgreinafélaganna í Austur-Húnavatnssýslu. Á árshátíðinni, sem haldin var fyrir skömmu, var bændum veitt verðlaun fyrir frábæran árangur í sauðfjárrækt á liðnu ári.

Í fréttatilkynningu á Húna.is kemur fram að besta ómmæling gimbrahjarðar árið 2015 var hjá Jóni Gíslasyni og Stellu á Stóra-Búrfelli en þar voru gimbrarnar sem skoðaðar voru með 30,2 mm að meðaltali í bakvöðva.

Hæst dæmdi lambhrútur árið 2015 var nr. 2 hjá Jóni Gíslasyni og Eline Manon Schrivjer á Hofi í Vatnsdal með 89,5 stig. Hann var undan Hnalli frá Broddanesi 12-934 og Væn 09-999.

Verðmætasta lambið árið 2015 var lamb nr. 266 hjá Sigþrúði Friðriksdóttur og Guðmundi Guðbrandsssyni á Bergsstöðum í Svartárdal. Það var 30,2 kg og fór í E3+. Merkilegast við þetta lamb er þó að það var tvílembingur undan tvævetlu, fætt 12. maí og slátrað 22. október. Lambið á móti var síðan 24,7 kg og því gríðarlegar afurðir hjá þessari ungu á.

Besti hrútur í afkvæmarannsókn árið 2015 var Goði 13-342 hjá Einari Árna Sigurðssyni og Þóru í Forsæludal með 128,9 stig. Hann átti 32 gimbrar sem voru skoðaðar og voru með 28,9 mm bakvöðva að meðaltali og 17,5 í lærastigun. Jafnframt átti hann 80 sláturlömb með fallþunga upp á 19,1 kg, gerð upp á 11 og fitu 7,5.

 

Fleiri fréttir