Verður þú 8 tonn að þyngd?

Samkvæmt könnunum VÍS nota 9% ökumanna á höfuðborgarsvæðinu ekki bílbelti. Símakannanir á vegum Umferðarstofu sýna að hlutfall þeirra sem spenna ekki beltin í aftursæti er mun hærra, en þriðjungur sagðist hafa verið farþegi í aftursæti í síðustu könnun þeirra án þess að spenna bílbeltið, eftir því sem kemur fram á vis.is.

Þar segir að engum dyljistst að bílbelti eru mikilvægt öryggistæki bæði fyrir farþega og bílstjóra en samt sem áður hafi 49 einstaklingar látist í umferðarslysum á árunum 2000 til 2010 sem Rannsóknarnefnd umferðarslysa telur að hefðu lifað ef þeir hefðu verið með bílbelti.

Þegar umferðarslys verður á 90 km/klst hraða leysast miklir kraftar úr læðingi eins og skemmdir á farartækjum gefa glöggt til kynna. Höggþungi 60 kg manneskju, sem ekki er með bílbelti, getur numið allt að 8 tonnum þegar hún kastast til. Enginn vildi verða fyrir slíku höggi. Þótt væri nema bara vegna eigin öryggis ættum við aldrei að ferðast í bíl með neinum án bílbeltis, segir á heimasíðu VÍS.

Fleiri fréttir