Verður Veiðibótasjóðurinn Blendingur lagður niður?

Boðað er til fundar í Veiðifélagi Blöndu og Svartár á morgun þar sem kynnt verður tillaga um uppgjör á milli leigutaka ánna og félagsins vegna ársins 2013 svo og tillaga um áframhaldandi samning við Lax-á ehf. og/eða útboð ánna. Strax að afloknum fundi mun Veiðibótasjóðurinn Blendingur halda fund.

Þar verður m.a. lögð fram tillaga stjórnar um að sjóðurinn verði lagður niður. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að mjög áríðandi sé að vel verði mætt á fundinn eða að landeigendur sendi fulltrúa sinn með fullgilt umboð.

Fundirnir eru haldnir í í Húnaveri og hefst sá fyrri kl. 20:00.

Fleiri fréttir