Verkefnastyrkir til menningarstarfs

Menningarráð Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki á grundvelli menningarsamnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við SSNV. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra.

Menningarráð Norðurlands vestra hefur ákveðið að hafa tvær úthlutanir á árinu 2011, með umsóknarfresti til og með 15. mars og 15. september. Menningarráð hefur ákveðið að þau verkefni hafi forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

  1. Efling atvinnustarfsemi, þekkingar og fræðslu á sviði menningar og lista.
  2. Efla samstarf á sviði menningarmála á svæðinu.
  3. Nýsköpun og þróun menningarstarfs og menningartengdrar ferðaþjónustu.
  4. Verkefni sem stuðla að þátttöku allra þjóðfélagshópa í menningarstarfi

Umsækjendur geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Norðurlandi vestra. Skilyrði er að viðkomandi sýni fram á mótframlag. Umsækjendum er bent á að kynna sér nánar Úthlutunarreglur 2011 á www.ssnv.is undir liðnum Menningarráð. Umsóknir skulu vera á eyðublöðum Menningarráðs Norðurlands vestra sem hægt er að nálgast á heimasíðunni www.ssnv.is undir liðnum Menningarráð. Í umsókninni skal m.a. vera greinargóð lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímasetningum, ítarleg fjárhagsáætlun (kostnaðar- og tekjuáætlun) og upplýsingar um aðstandendur.

Umsóknir vegna fyrri úthlutunar ársins 2011 skulu sendar Menningarfulltrúa Norðurlands vestra, Einbúastíg 2, 545 Skagaströnd, eigi síðar en 15. mars 2011. Þær má senda rafrænt á netfangið menning@ssnv.is. Séu þær sendar í pósti skulu þær póststimplaðar eigi síðar en síðasta umsóknardag.

Allar nánari upplýsingar og aðstoð veitir Ingibergur Guðmundsson menningarfulltrúi Norðurlands vestra, símar 452 2901 / 892 3080, netfang menning@ssnv.is.

Fleiri fréttir