Verkfall veldur miklu tjóni
Eins og sagt var frá i Feyki á dögunum eru SAH afurðir á Blönduósi meðal þeirra fyrirtækja sem bíða tjón af verkfalli dýralækna hjá Matvælastofnun sem staðið hefur yfir síðan í byrjun apríl. Hefur fyrirtækið ekki getað staðið við samninga sína um útflutning á kjöti og hliðarafurðum vegna þessa.
Á annað hundrað tonn af kjöti og um 70 þúsund gærur bíða þess að verða flutt út frá fyrirtækinu til Asíu og Færeyja og mun fyrirtækið þurfa að greiða bætur vegna tafa á flutningnum. Sagt er frá þessu í Fréttablaðinu á sunnudaginn og haft eftir Gunnari Tryggva Halldórssyni, framkvæmdastjóra SAH Afurða, að tapið sé gífurlegt fyrir félagið. Gámur sem átti að fara til Færeyja í sunnudag sé beint tap þar sem hann komst ekki á umsömdum tíma.
„Sendingin til Asíu hefur verið föst í um mánuð en þar bíða 160 tonn af lambakjöti og 70 þúsund gærur. Um mjög góðan samning var að ræða fyrir okkur en nú þurfum við að greiða bætur vegna tafa. Því á eftir að koma í ljós hversu hagstæður samningurinn verður eftir allt saman,“ segir Gunnar Tryggvi í Fréttablaðinu sl. sunnudag.