Verslunin Kjalfell lokar
Verslunin Kjalfell, Húnabraut 4, á Blönduósi lokar þann 5. mars og verður rýmingarsala þangað til. Dekkjaverkstæði og smurstöð í sama húsnæði mun þó halda áfram starfsemi í óbreyttri mynd.
Á rýmingarsölunni er hægt að gera góð kaup en boðið verður upp á 10-90% afsláttur. Allar vörur eru á afslætti þ.á.m. borð og ferðatölvur, GSM símar, MP3 spilarar, myndavélar, blek, prentarar, mýs, lyklaborð, webcam, ..... allt á að seljast.