Versnandi veður á Norðurlandi vestra
Veðurstofan hefur gefið út stormviðvörun á S- og A-verðu landinu og miðhálendinu í dag. Annars er spáin fyrir Norðurland vestra á þá leið að í dag verður norðan 15-20 m/s og snjókoma, en norðvestan 10-15 og éljagangur síðdegis. Hægari og áfram ofankoma á morgun. Hiti kringum frostmark.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðvestan 10-15 m/s, en hægari á S-lands. Snjókoma á N-verðu landinu, en annars dálítil él. Frost 0 til 5 stig.
Á föstudag:
Breytileg átt og stöku él, en slydda eða snjókoma um tíma á S-lands. Frostlaust syðst, en frost annars 0 til 8 stig, mest inn til landsins.
Á laugardag:
Ákveðin norðanátt með éljagangi, en björtu syðra. Frost yfirleitt 1 til 6 stig.
Á sunnudag:
Hægviðri og stöku él, en áfram fremur kalt í veðri.
Á mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir austanátt með ofankomu og hlýnandi veðri.