Versnandi veður í dag
Spáð er versnandi veðri í dag og útlit er fyrir storm um landið norðvestan og vestanvert með stórhríð og mjög takmörkuðu skyggni á Vestfjörðum og Norðurlandi. Samkvæmt heimasíðu Vegagerðarinnar er spáð NA- og NNA-átt, allt að 20-25 m/s á fjallvegum. Óveður er nú á Siglufjarðarvegi utan Fljóta.
Áá Norðurlandi vestra er víða nokkur hálka. Krapi austantil á Norðurlandi og hiti rétt ofan frostmarks á láglendi, en hríð á fjallvegum. Sem fyrr segir er óveður á Siglufjarðarvegi utan Fljóta. Austan Skagafjarðar er víðast hvar ofankoma og snjóþekja eða krap.