Versta veður í langan tíma

Það er búið að vera nóg að gera hjá Björgunarsveitinni Strönd á Skagaströnd síðustu sólarhringa en samkvæmt færslu á heimasíðu björgunarsveitarinnar var fjöldi útkalla og aðstoðarbeiðna kominn vel á þriðja tuginn í dag. 

„Það er samdóma álit manna að þetta sé eitt versta veður í mjög langan tíma að minnsta kosti hvað veðurhæð varðar en um tíma þegar veðrið var sem verst var stöðugur vindur 33-38 m/s og hviður 44-49 m/s og verður því að teljast nokkuð vel sloppið að ekki hafi orðið meira tjón en raunin er,“ segir á heimasíðunni.

Verkefnin sem björgunarsveitarmenn sinntu voru af ýmsu tagi, allt frá að bjarga heilu þökunum og niður í það að aka fólki á milli staða, grindverk að fjúka, rúðubrot, bátar að slitna upp og svo mætti lengi telja. 

„Veður er nú tekið að ganga niður og má við því búast að eitthvað eigi eftir að koma í ljós þegar fólk fer að fara á stjá og vitja eigna sinna,“ segir loks á heimasíðunni.

Fleiri fréttir