Vetraráætlun Strætó á landsbyggðinni

Þann 15. september tekur vetraráætlun Strætó á landsbyggðinni gildi og mun áætlunin gilda til 17. maí 2014. Ný leið (Leið 85) með akstur í pöntunarþjónustu kemur inn í Skagafirði, tvær ferðir á dag, miðvikudaga, föstudaga og sunnudaga á leiðinni Hofsós – Hólar – Sauðarkrókur í tengslum við leið 57. Áætlunin á helstu leiðum verður eins og hér segir:

VESTURLAND OG NORÐURLEIÐ

Leið 57: Ein ferð á laugardögum eins og síðasta vetur annars tvær ferðir á dag.

Leið 58: Tvær ferðir mánudaga, föstudaga og sunnudaga, en ein ferð á miðvikudögum og laugardögum. Enginn akstur þriðjudaga og fimmtudaga.

Leið 59: Ekið til Hólmavíkur tvo daga í viku, föstudaga og sunnudaga og til Búðardals mánudaga og miðvikudaga. Enginn akstur þriðjudaga og fimmtudaga.

Leið 81. Akstur á virkum dögum eins og síðasta vetur. Ekki í pöntunarþjónustu.

Leið 82: Leiðin verður tekin úr pöntunarþjónustu og ekur einungis þá daga sem leið 58 ekur.

Ný leið: Leið 85 kemur inn með akstur í pöntunarþjónustu með tvær ferðir á dag, miðvikudaga, föstudaga og sunnudaga á leiðinni Hofsós – Hólar – Sauðarkrókur í tengslum við leið 57.

Fleiri fréttir