Vetrarfærð á Norðurlandi
Vetrarfærð er á Norðurlandi, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni, víða hálkublettir, hálka eða snjóþekja og sumstaðar él. Enn eru vegfarendur varaðir við skemmdum á klæðningu (slitlagi) á á Þverárfjallsvegi. Þungatakmarkanir eru víða um land og má fá nánari upplýsingar í síma 1777 eða á vef Vegagerðarinnar.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er suðaustan 5-8 og þurrt að kalla en suðaustan 8-13 og rigning eða slydda verður í kvöld. Í veðurkortum Veðurstofunnar er suðvestan 13-18 og rigning á morgun en vestan 8-15 og él síðdegis. Hiti um frostmark en 0 til 5 stig í nótt.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Vestlæg átt, 8-15 m/s. Rigning og síðar skúrir eða él, en úrkomulítið austantil. Kólnandi veður.
Á laugardag:
Suðvestlæg átt 5-10 m/s og víða bjartviðri, en 8-13 m/s og él um landið norðvestanvert síðdegis. Hiti um og undir frostmarki, en hiti 0 til 5 stig sunnan- og vestanlands.
Á sunnudag og mánudag:
Útlit fyrir stífa norðaustan átt með snjókomu norðvestantil á landinu en hægari vind og él norðaustanlands. Suðlæg átt sunnan og vestanlands og slydda eða rigning með köflum, Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir stífa norðaustan átt með snjókomu norðvestantil á landinu en hægari vind og él norðaustanlands. Suðlæg átt sunnan og vestanlands og slydda eða rigning með köflum, Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag:
Hvöss norðaustanátt, og snjókoma eða él norðantil en yfirleitt þurrt syðra. Talsvert frost víðast hvar en frostlaust syðst.