Vetrarfærð á Norðurlandi vestra
Slæm akstursskilyrði eru um allt Norðurland vestra, krapi, snjór og hálka, einkum á Þverárfjalli og Vatnsskarði og á leiðinni til Siglufjarðar þar sem einnig er éljagangur og skafrenningur. Á Þverárfjalli var vindhraði kl. 9:30, 10 m/s, hiti -5°C, á Vatnsskarði 12 m/s og -6°C og á Blönduósi 12 m/s og -3°C hiti. Vegfarendur eru því beðnir um að fara gætilega einkum þeir sem búnir eru að skipta yfir á sumardekkin.
Veðurspáin er ekki sumarleg en Veðurstofan gerir ráð fyrir að kalt verði alla vikuna en fari hlýnandi með nýrri viku. Spáin er eftirfarandi fyrir Strandir og Norðurland vestra:
Norðan 10-15 m/s og él. Hægari og úrkomuminna á morgun. Frost 0 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Fremur hæg breytileg átt, en norðvestan 8-13 m/s við NA-ströndina. Stöku él við ströndina, annars bjartviðri. Hiti 2 til 7 stig að deginum, en kringum frostmark á N- og A-landi. Víða næturfrost.
Á fimmtudag (uppstigningardagur):
Vestlæg átt, 8-10 á annesjum N-til, en annars hægari. Dálítil él V-lands og á annesjum N-til, en annars bjartviðri. Hiti 1 til 7 stig, svalast NA-lands.
Á föstudag:
Suðvestlæg átt, 5-10 og dálítil rigning eða skúrir, en þurrt fyrir austan. Hiti svipaður.
Á laugardag:
Sunnanátt með rigningu, en hægari og þurrt A-lands. Hlýnandi veður.
Á sunnudag:
Sunnanátt með rigningu, einkum S- og V-lands. Milt veður.