Vetrarfærð víðast austan Blönduóss
Á Norðurlandi eru vegir auðir vestan Blönduóss en þar fyrir austan er víðast hvar vetrarfærð, hálkublettir, hálka eða snjóþekja og víða ofankoma.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er norðaustan 10-15 og dálítil él, einkum á annesjum, en yfirleitt hægari í innsveitum í dag. Heldur hvassara í nótt og á morgun. Hiti kringum frostmark.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Norðaustanátt, 8-15 m/s, en 13-20 norðvestantil. Snjókoma eða él norðantil, slydda um landið austanvert, en yfirleitt þurrt á Suður- og Suðvesturlandi. Hiti kringum frostmark, en hiti 0 til 5 stig sunnan- og austantil.
Á laugardag:
Norðaustan 8-15 m/s og dálítil él með norðurströndinni, slydda eða rigning austanlands en yfirleitt þurrt og bjart suðvestantil. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag:
Austlæg átt, 5-13 m/s, en 10-18 NV-til. Skýjað og víða dálítil él norðantil, væta A-lands, en annars skýjað með köflum en þykknar upp og fer að rigna með suðausturströndinni um kvöldið. Hiti svipaður.
Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fyrir austanátt. Dálítil rigning sunnan og austantil, einkum SA-lands, stöku él fyrir norðan, en annars úrkomulítið. Lengst af frostlaust á láglendi.