Vetrarleikar í frábæru veðri
Vetrarleikar hestamannafélagsins Neista voru haldnir í frábæru veðri og aðstæðum á Svínavatni í gær, samkvæmt heimasíðu hestamannafélagsins. Um var að ræða ístöltmót og keppt var í flokki unglinga (16 ára og yngri), áhugamanna og í opnum flokki. Einnig var haldin bæjarkeppni með firmakeppnisfyrirkomulagi.
Úrslit voru eftirfarandi:
Börn og unglingar 16 ára og yngri:
1. Sigurður Aadnegard og Prinsessa frá Blönduósi
2. Lilja Maria Suska og Hamur frá Hamrahlíð
3. Sólrún Tinna Grímsdóttir og Gjá frá Hæli
4. Ásdís Brynja Jónsdóttir, Eyvör frá Eyri
5. Ásdís Freyja Grímsd. og Hrókur frá Laugabóli
Áhugamenn:
1. Þórólfur Óli Aadnegard og Þokki frá Blönduósi
2. Magnús Ólafsson og Dynur frá Sveinsstöðum
3. Jón Gíslason, Hvínur frá Efri Rauðalæk
4. Kristján Þorbjörnsson og Píla frá Sveinsstöðum
5. Hákon Ari Grímsson og Hnakkur frá Reykjum
Opinn flokkur:
1. Pétur Sæmundsson og Prímus frá Brekkukoti
2. Ægir Sigurgeirsson og Gítar frá Stekkjardal
3. J.Víðir Kristjánsson og Börkur frá Brekkukoti
4. Ragnhildur Haraldsdóttir og Hatta frá Akureyri
5. Hjörtur Karl Einarsson og Syrpa frá Hnjúkahlíð
Bæjarkeppnin:
1. Lara Margrét Jónsdóttir og Auðlind frá Kommu - kepptu fyrir Reyki
2. Sigurður Aadnegard og Prinsessa frá Blönduósi - kepptu fyrir Stóra - dal
3. Ásdís Brynja Jónsdóttir, Eyvör frá Eyri - kepptu fyrir Húnsstaði
4. Ægir Sigurgeirsson og Þytur frá Stekkjardal - kepptu fyrir Steinnes
5. Hjörtur Karl Einarsson og Svipur frá Hnjúkahlíð - kepptu fyrir Hnjúkahlíð
6. Jón Gíslason og Hvinur frá Efri- Rauðalæk - kepptu fyrir Sveinsstaði
7. Magnús Ólafsson og Dynur frá Sveinsstöðum - kepptu fyrir Hof
8. Pétur Sæmundsson og Tign frá Brekkukoti - kepptu fyrir Brekkukot