Vetrarleikar Neista á sunnudag

Vetrarleikar Neista verða haldnir á Hnjúkatjörn sunnudaginn 24. febrúar kl. 13. Á mótinu verður keppt í tölti (opið fyrir alla) í opnum flokki, áhugamannaflokki og unglingaflokki (16 ára og yngri), samkvæmt heimasíðu Neista.

Einnig verður bæjarkeppni, með firmakeppnisfyrirkomulagi, þ.e. riðnar 4 ferðir með frjálsri aðferð. Engin skráningargjöld.

Skráning er á netfang Neista neisti.net@simnet.is fyrir kl. 12:00 á hádegi  föstudaginn 22. febrúar. Fram þarf að koma; knapi, hestur og flokkur.

Skráningargjald fyrir tölt er 1.000 kr. fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur eftir það. Skráningargjald fyrir unglinga er 500 kr. fyrir hverja skráningu. Skráningargjöld þarf að greiða áður en mót hefst inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 eða á staðnum (í peningum, ekki tekið við kortum).

Ef ísinn á Hnjúkatjörn verður ekki nógu góður á sunnudag verður mótið fært og látið vita á heimasíðu Neista.

 

Fleiri fréttir