VG fastir við sinn keip, segir Einar K

Einar K. Guðfinnsson alþingismaður telur að niðurskurðaráform þingflokka ríkisstjórnarinnar gagnvart heilbrigðisstofnunum fyrir næsta ár muni standa þrátt fyrir ályktanir um hið gagnstæða og sem samþykktar voru á landsfundi VG um sl. helgi. Einar spurði Björn Val Gíslason formann þingflokks VG og varaformann fjárlaganefndar Alþingis um málið á Alþingi í dag.

 

-Ég tók upp málefni heilbrigðisstofnana í framhaldi af frétt ykkar  í Feykir.is  í dag, þar sem rætt var við Bjarna Jónsson um landsfund VG. Gekk ég eftir því við þingflokksformann VG hvort ætlunin væri að bakka með niðurskurðartillögurnar gagnvart heilbrigðisstofnunum, eins og Bjarni túlkar samþykktir flokksins. Ekki fann ég nokkurn bilbug á þingflokksformanninum og skrifaði síðan pistil um málið á heimasíðuna mína núna áðan, segir Einar

 

Á heimasíðu sinni ekg.is segist Einar túlka orðlagið „frekari niðurskurður“ sem kemur fyrir í ályktuninni þannig að það vísaði til núverandi ástands í heilbrigðiskerfinu. „Sem sagt að flokkurinn væri andvígur því að ganga lengra en er í gildandi fjárlögum og væri því beint gegn niðurskurðaráformunum í  fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Þó ekki sé ég neinn löggiltur túlkandi samþykkta VG skildi ég þetta þannig“, segir Einar og heldur áfram: „Ég er svo sem ekki einn um þá túlkun. Hún er samhljóða áliti Bjarna Jónssonar, formanns Byggðaráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar og formanns Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem leggur út frá samþykktinni með sama hætti og ég í Feykir.is  í dag. Taldi ég að Bjarni mætti glöggt vita, þar sem hann hefði verið einn af þeim sem tillöguna flutti á landsfundi VG.

Þingflokksformaður VG er þessu ósammála. Hann telur að hér sé verið að vísa til þess að láta eigi staðar numið eftir að niðurskurðaráformin í fjárlagafrumvarpinu hafa verið samþykkt. Með batnandi hag eigi hins vegar að bæta í. En ekki núna. Alls ekki núna.“

Fleiri fréttir