„Við ákváðum að finna okkur eitthvað að gera“
Hjónin Selma Hjörvarsdóttir og Tómas Árdal hafa búið á Sauðárkróki síðan 1996, en þau áttu engin tengsl við staðinn áður en þau fluttu þangað ásamt fjórum börnum sínum fyrir utan nokkra kunningja og vini. Í dag eiga þau og reka tvö fyrirtæki sem eru umsvifamikill í veitinga- og gistihúsageiranum á Sauðárkróki.
Fyrirtækin sem um ræðir eru annars vegar Spíra ehf. sem rekur Arctic Hotels, en undir því eru gististaðirnir hótel Miklagarður, gistiheimilið Mikligarður og Hótel Tindastól. Hins vegar Stá ehf., sem rekur veitingastaðina Ólafshús, Kaffi Krók og skemmtistaðinn Mælifell, en þær eignir og rekstur keyptu þau um síðustu áramót af þeim Kristínu Magnúsdóttur og Sigurpáli Aðalsteinssyni.
„Við höfum sagt það stundum í gegnum árin að það væru mikil samlegðaráhrif af þessum tveimur fyrirtækjum, hvort sem að þau keyptu af okkur eða við af þeim. Síðan kjaftaðist þetta svona til í haust og gekk hratt fyrir sig og um áramótin vorum við tekin við,“ útskýra Selma og Tómas. Aðspurð um framtíðarsýn fyrir rekstur veitingahúsanna segjast þau vilja komast vel inn í reksturinn áður en ráðist verði í einhverjar breytingar eða nýja stefnumótun, þangað til verði áhersla lögð á að treysta þann góða rekstur sem þau tóku við.
„Við erum með góðan kjarna af starfsfólki í báðum fyrirtækjunum sem kann vel til verka. Núna eru um 24 stöðugildi í heildina á báðum stöðum en í sumar reiknum við með að það verði 50-60,“ útskýrir Tómas. „Ég réði svo til mín mann sem ég kalla mína hægri hönd, Óla Grétar Óskarsson sem er rekstrarstjóri veitinga- og skemmtistaðanna. Hann hafði unnið hjá okkur á hótelunum í nokkur ár og einnig dálítið á Ólafshúsi þannig að hann þekkir okkur vel og hvernig við hugsum og viljum hafa hlutina.“
Við ráðningu á sumarstarfsfólki segjast þau vinna að því að það sé ýmist heimafólk eða fólk sem hafi ættartengsl við svæðið. Í því samhengi berst talið að því að bæst hafi í hóp þeirra góðu kokka sem starfa á Ólafshúsi. Sauðkrækingurinn Stefán Ingi Svansson er væntanlegur á staðinn í sumar með fjölskyldu sína. „Það er einkar ánægjulegt að fá hann til liðs við okkur og hann mun flytja hingað með eiginkonu og þrjú börn,“ segir Tómas.
Ítarlegt viðtal við Selmu og Tómas má lesa í Feyki vikunnar en þar segja þau frá bakgrunni sínum, fyrri störfum og þann viðamikla rekstur sem þau hafa ráðist í.